Rannsókn sýnir að kjöt er til gagns í baráttunni gegn krabbameini

Fitusýra sem er að finna í kjöti og mjólkurvörum frá beitardýrum getur hjálpað til við að berjast gegn krabbameini. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn, að því er CBS News greinir frá.

Vísindamenn við háskólann í Chicago hafa komist að því, að kjöt er til gagns í baráttunni gegn krabbameini. Rannsóknin birtist nýlega í Nature (sjá pdf að neðan).

Bætir getu vissra ónæmisfruma sem ráðast á krabbameinsfrumur

Samkvæmt CBS snýst málið um, að fitusýrur sem finnast í kjöti og mjólkurafurðum frá beitardýrum bæta getu T-fruma ónæmiskerfisins til að komast í æxli og drepa krabbameinsfrumur. Háskólann í Chicago skrifar á vefsíðu sinni:

„Næringarefnið sem þekkt er sem trans-vaksenínsýra eða TVA, er að finna í matvælum dýra sem eru tamin til beitar eins og kýr og sauðfé. Rannsóknin leiddi í ljós, að TVA bætir getu þeirrar tegundar ónæmisfruma sem kallast CD8+ sem síast inn í æxli og ræðst á krabbameinsfrumur.“

Jing Chen, einn af vísindamönnum rannsóknarinnar, segir í yfirlýsingu:

„Það eru margar rannsóknir sem rýna í tengslin á milli mataræðis og heilsu manna og það er mjög erfitt að skilja undirliggjandi þætti vegna þess, að fólk borðar svo fjölbreyttan mat … Með því að einblína á næringarefni sem geta virkjað T-frumuviðbrögð fundum við eitt sem í raun eykur ónæmi gegn æxlum með því að virkja mikilvæga ónæmisferil.“

Einn notandi á X segir nettó núll vera dauðadýrkun:

„Nettó núll þýðir að lokum endalok nautakjöts og mjólkurafurða. Þessi rannsókn er bara frekari staðfesting á því að nettó núll er dauðadýrkun.“

Hér að neðan er skýrslan með niðurstöðum rannsóknarinnar:

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa