Demókratar í Hæstarétti Colorado hafa úrskurðað, að nafn Trumps forseta megi ekki vera á kjörseðlinum í Colorado árið 2024.
Það er kaldhæðnislegt, að þessir öfga-vinstri dómarar notuðu breytingartillögu eftir borgarastyrjöldina, sem engir demókratar greiddu atkvæði með á þeim tíma, til að koma í veg fyrir að hægt verði að kjósa um leiðandi nafn frambjóðanda stjórnarandstöðunnar.
Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem demókratar leika þennan ljóta leik í forsetakosningum Bandaríkjanna.
Eins og Randy DeSoto greindi frá í Western Journal í nóvember: Síðast þegar demókratar höfðu upp slík hrappasvik var í forsetakosningunum 1860, þegar nafn frambjóðanda repúblikana, Abraham Lincoln, var ekki birt á atkvæðaseðlum flestra suðurríkjanna.
Abraham Lincoln vann kosningarnar engu að síður með yfirgnæfandi atkvæðum í öðrum hlutum landinu. Samsæri demókrata mistókst.
Abraham Lincoln vann kosningarnar með 180 kjörmönnum. Skipting kjörmanna milli frambjóðenda skv. kortinu hér að neðan: