Hin myrka hlið Úkraínustríðsins: Líffærasala og kynlífsþrælkun barna

Rannsóknarblaðamaðurinn Leo Hohmann skrifar góðar greinar um glóbalismann og trúarbrögð á Substack. Í nýlegri grein skrifar hann um hina myrku hlið Úkraínustríðsins: Líffæraræktun og kynlífsþrælkun barna í Úkraínu. Hann hefur eigin rás m.a. á rumble. Hér að neðan er stiklað á stóru úr greininni.


Biden skuldbindur bandaríska skattgreiðendur í 10 ár með „óútfylltri ávísun“ til að fjármagna stríðið í Úkraínu: „Hin myrka hlið“ stríðsins felur í sér líffærauppskeru og kynlífssölu barna

Joe Biden og Zelensky forseti Úkraínu ætla að undirrita samning um langtímahernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu, land þar sem ríkisstjórnin sem við þekkjum tekur þátt í kynlífssölu á börnum og tekur líffæri eigin hermanna og selur í hagnaðarskyni.

Ef það hljómar of mikið til að geta verið satt, lestu þá áfram. Sönnunargögnin leynast í beinni augsýn. Sjáðu færsluna hér að neðan frá X og myndband síðar í þessari grein sem inniheldur frekari sönnun um hvað er raunverulega að gerast í Úkraínu. Manni verður flökurt.


En aftur að skítugum samningi Bidens við djöfulinn. Samningurinn skuldbindur bandaríska skattgreiðendur – venjulegt fólk – til að vopna og þjálfa úkraínska herinn í 10 ár og nærir hergagnasamstæðuna sem hefur völdin yfir meirihluta kjörinna þingmanna okkar í báðum flokkum. Ein lítil góð frétt fylgir samt með: Vegna þess að samningurinn er svokallaður „framkvæmdasamkomulag“ en ekki formlegur sáttmáli, þá geta forsetar Bandaríkjanna ógilt hann í framtíðinni.

CNN athugaði samninginn og greindi frá:

„Viðauki við samninginn mun gera grein fyrir því hvernig Biden-stjórnin ætlar að vinna með þinginu að framkvæmd öryggisskuldbindinganna, sérstaklega langtímafjármögnun sem þarf til að styðja við varnir Úkraínu.“

Þannig að við skattgreiðendur erum í grundvallaratriðum að tryggja varnarmál erlendrar stjórnar. Ég velti því fyrir mér hvað forfeður okkar myndu hugsa um það?

John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, sagði að Bandaríkin „munu halda áfram að vera í fremstu röð.“

„Washington mun taka djörf skref til að sýna herra Pútín að tíminn sé ekki með honum og að hann muni ekki endast á meðan við styðjum frelsisbaráttu Úkraínu.“

Köllum það sem það er: Óútfyllt ávísun til spilltrar erlendrar ríkisstjórnar sem hefur algjörlega útrýmt frelsi úkraínsku þjóðarinnar. Kosningum hefur verið aflýst. Fjölmiðlum og kirkjum sem lýsa andstöðu við stríðið hefur verið lokað, ungum og miðaldra mönnum er rænt og sendir út á vígvöllinn til að deyja. Hvers slags frelsi er það?

Vestrænum stórfjölmiðlum finnst þetta frábært. Þeir efast ekki einu sinni um þetta. Sjáðu þessa andlausu frétt (hér að neðan) frá mjög spenntum blaðamanni ABC News, þar sem eini ókosturinn er, að Donald Trump verðandi forseti gæti rift samningnum.

Hún gat varla hamið æsinginn. Tíu ára millifærslur á bandarískum sköttum stritandi fólks til að styðja við ólöglegt einræði í Úkraínu. Zelensky hefur aflýst kosningum og starfar utan gildissviðs kjörtímabils síns. Skattpeningarnir okkar fara ekki einungis til hans heldur einnig til hermanna hans og í eftirlaun embættismanna hans. Ég velti því fyrir mér hversu margir Bandaríkjamenn eru meðvitaðir um það eða hversu margir eru meðvitaðir um kynlífssölu barna, líffærauppskeru, lífrannsóknastofur og aðra hneykslanlega starfsemi sem er í gangi í Úkraínu.

Trúirðu mér ekki? Horfðu á myndina hér að neðan frá Clayton Morris, fyrrum blaðamanni Fox News, um „myrku hliðina“ á Úkraínustríðinu.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa