Julian Assange laus samkvæmt uppgjöri við Bandaríkin

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur verið látinn laus úr Belmarsh fangelsinu eftir að hafa náð samkomulagi við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Assange hefur verið í Belmarsh fangelsinu í Bretlandi síðastliðin fimm ár eftir að hafa áður dvalið í sjö ár í sendiráði Ekvador sem pólitískur flóttamaður.

WikiLeaks skrifar á X:

„Eftir að hafa dvalist yfir fimm ár í 2×3 metra klefa, einangraður 23 tíma á sólarhring, mun Assange fljótlega sameinast eiginkonu sinni Stellu Assange og börnum þeirra, sem einungis hafa þekkt föður sinn á bak við lás og slá.

WikiLeaks birti tímamótafréttir um spillingu stjórnvalda og mannréttindabrot og gerði þá valdamiklu ábyrga gjörða sinna. Sem aðalritstjóri hefur Julian þurft að greiða mikið fyrir þá reglu og fyrir rétt fólks að fá að vita.

Þegar hann snýr aftur til Ástralíu þökkum við öllum sem stóðu með okkur, börðust fyrir okkur og voru áfram af fullum hug í baráttunni fyrir frelsi hans. Frelsi Julians er frelsi okkar.“

WikiLeaks birti einnig myndband sem sýnir að Assange hefur verið látinn laus úr Belmarsh fangelsinu:

Átti yfir höfði sér 175 ára fangelsisdóm

Sem útgefandi fréttaefnis átti Julian Assange yfir höfði sér ákæru samkvæmt njósnalögum fyrir að birta gögn um stríðið í Írak og Afganistan sem uppljóstrarinn Chelsea Manning lét hann fá. Assange átti yfir höfði sér 175 ára fangelsisdóm fyrir að birta efni sem lekið var ef hann hefði farið fyrir bandarískan dómstól.

NBC News greinir frá: Assange var ákærður fyrir að brjóta lög um hernaðarleg leyndarmál …. og fyrir samsæri við að afla og birta upplýsingar um landvarnarmál segir í dómsskjölunum (sjá pdf að neðan). Í bréfi frá embættismanni dómsmálaráðuneytisins, Matthew McKenzie, til bandaríska héraðsdómarans Ramona Manglona við héraðsdóm Bandaríkjanna á Norður-Maríanaeyjum segir, að Assange muni mæta fyrir dómstólinn klukkan 9 að staðartíma á miðvikudag til að játa sekt sína. Segir að dómsmálaráðuneytið geri ráð fyrir, að Assange muni snúa aftur til heimalands síns Ástralíu eftir málsmeðferðina.

Ákæra Bandaríkjanna á hendur Assange kom í kjölfar einnar stærstu birtingu trúnaðargagna í sögu Bandaríkjanna, sem gerðist á fyrsta kjörtímabili Baracks Obama. Samkvæmt stjórnvöldum gerði Assange samsæri síðla árs 2009 við Chelsea Manning, sérfræðing í leyniþjónustu hersins, um að birta tugþúsundir gagna á Wikileaks um stríðið í Afganistan, hundruð þúsunda skýrslna um stríðið í Írak, hundruð þúsunda gagna utanríkisráðuneytisins ásamt gögnum um fanga í Guantanamo-flóa.

Mætir fyrir rétt á Norður-Marianaeyjum til að játa sig sekan um „samsæri til að komast yfir og birta upplýsingar um landvarnarmál“

Dómsskjölin (sjá pdf að neðan) sem afhjúpa málsmeðferð Assange voru lögð fram aðfaranótt mánudags í héraðsdómi Bandaríkjanna á Norður-Mariana-eyjum. Norður-Marianaeyjar eru bandarískt yfirráðasvæði í Kyrrahafinu.

Samkvæmt samningnum mun Assange mæta fyrir þann dómstól til að verða dæmdur í 62 mánaða fangelsi. Með tilliti til tímans sem hann hefur þegar setið í Belmarsh, þá verður honum kleift að snúa aftur til heimilis síns í Ástralíu.

Ákæran sem hann mun játa sig sekan um er: „Samsæri til að fá og birta upplýsingar um landvarnarmál.“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa