Íhlutun múslima er nú orðin svo umfangsmikill í Bretlandi, að þingmenn eru farnir að sverja eið yfir Kóraninum, þegar þeir koma inn á þingið. Reiði almennings eykst í Bretlandi yfir svívirðunni.
Í Bretlandi er mikill fjöldi múslima sem ekki er óeðlilegt vegna fyrri nýlendna stórveldisins. Þetta hefur leitt til víðtækrar íhlutunar múslima í breska samfélaginu. Eitt vel þekkt dæmi er borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, sem er múslími.
Aukin áhrif múslíma á breska þinginu
Núna gengur myndband um allt á samfélagsmiðlum sem sýnir þingkonuna Nesil Caliskan sverja eið sinn sem þingmaður með hendina á Kóraninum, hinni helgu bók Íslams samanber myndskeiðið hér að neðan:
Caliskan er þingmaður Verkamannaflokksins og er af tyrkneskum ættum.
Reiði almennings
Hún fær mikið hól á X-síðu sinni og þar sem megin hluti lofsins er á tyrknesku má gera ráð fyrir, að hólið komi frá samlöndum hennar.
Annars heyrist mest gagnrýni. Margir Bretar lýsa yfir efasemdum á samfélagsmiðlum um hvort hún muni raunverulega standa vörð um hagsmuni Breta. Einn áhyggjufullur breskur einstaklingur segir að það sé ögrun við grundvallarreglur Breta að láta sverja sig inn á þing með hendina á Kóraninum:
„
Í síðustu kosningunum kusu aðeins um helmingur atkvæðisbærra manna. Má túlka afstöðu þeirra sem ekki nýttu atkvæðisréttinn sinn sem mótmæli?