Ég hefði ekki valið Trump sem varaforseta ef ég héldi ekki að hún væri hæf sem forseti

Joe Biden, fyrirmyndaforseti hins vestræna heims, ásamt varaforseta sínum henni Donald Trump.

Ef ellisjúki Joe Bidem Bandaríkjaforseti væri ekki jafn stríðsóður og hann er og leiðandi í að koma heiminum á barm þriðju heimsstyrjaldarinnar, þá færi hann sjálfsagt í sögubækurnar sem einn vitlausasti en jafnframt fyndnasti forseti Bandaríkjanna.

Biden hélt blaðamannafund í gær sem hafði verið auglýstur fyrir fram sem blaðamannafundur „stóra bossans“ til að skapa eftirvæntingu á boðskap forsetans.

Og ekki vantaði boðskapinn:

Zelenskí heitir núna Pútín og Biden hefur varaforseta sem heitir Trump af því að hann treystir henni svo vel!

Sá sem gefur út brandarabók Bidens kemur til með að græða meir en túskilding.

Trump skrifað á Truth:

„Joe svindlarinn hóf „stóra Boss“ blaðamannafundinn á orðunum: „Ég hefði ekki valið Trump sem varaforseta ef ég héldi að hún væri ekki hæf til að verða forseti.“ Vel unnið, Joe!“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa