EINMANA ÚLFUR; LONE WOLF EN TALIN ERU ELLEFU SKOT

Hallur Hallsson skrifar:

Hallur Hallsson, blaðamaður

Það er paník í Washington, Trump lifði af banatilræðið en þrjú skot struku höfuð Trump þegar hann snéri sér, samkvæmt óháðum fréttamiðlum, þar á meðal And We Know svo sem sjá má. Það hafa verið talin ellefu byssuskot á fimmtán sekúndna skeiði. Fimm úr byssu no. 1, fimm úr byssu nr. 2 og svo í lokin eitt skot á 15 sekúndu. Þrjár manneskjur úr efstu röð urðu fyrir skotum, þar af fimmtugur maður sem lést og svo var uppákoma við Vatnsturn skammt frá skotstað.


TVÍTUGUR GUTTI

FBI segir að á bak við tilræðið sé tvítugur sendill hjúkrunarheimilis Thomas Crooks. FBI segist vita að Crooks hafi verið einn að verki einmana úlfur; lone wolf. Samt hefur FBI ekki getað opnað síma stráksins. Ekkert er vitað um hvernig Crooks gat snúið á öryggisgæslu en ítrekaðar tilraunir fólks að benda á drenginn voru árangurslausar. Mikið er verið lagt upp úr kaupum Crooks á stiga en það voru tveir stigar við skúrinn. Ekkert er vitað um ástæður úlfsins einmana frekar en Lee Harvey Oswald 1963. Sex ár liðu þar til samsæri um að drepa John F. Kennedy var afhjúpað í réttarhöldum í Louisiana svo sem Oliver Stone upplýsir í JFK. Samt er morðið enn óupplýst. Riffill var tengdur Oswald en það voru aðrar leyniskyttur. CIA neitar að birta skjöl líkt og FBI af 9/11.

ÖGYRRISVARSLA & LOFTHRÆÐSLA

Allir eru sammála um að Secret Service öryggisgæslan gerði aulamistök; „Collossal Failure” á laugardag. Kimberley Cheattle yfirmaður öryggisgæslunnar sagði í viðtali við ABC að öryggisvörðum hafi ekki verið óhætt á hallandi þakinu sem þó er nánast flatt. Öryggisverðir hafi tryggt öryggi úr byggingunni. Kannski hefur lofthræðsla hamlað. Öryggisverðir skutu drenginn ekki fyrr en eftir skothríð og byssukúlur struku Trump sem hafði látið sig falla. Viðstödd vitni bentu fréttakonu á uppákomu skammt frá vatnsturni en Fox beindi tökuvélum annað. Secret Service ætlaði að mæta í þingið, en Heimaöryggisráðuneytið; Homeland Security bannar það! Það er paník í Washington.

SKORTSTAÐA & FOLLOW THE MONEY

Rannsókn sem gerð var 2010 upplýsti að fyrir 11/9 2001 voru teknar skortstöður í helstu fugfélögum Ameríku sem tengja mátti vitneskju um hryðjuverkin. Fyrir 7. október 2023 var veðjað gegn ísraelskum fyrirtækjum. Man in America bendir á að í Texas tók Austin Private LCC skortstöðu í 12.000.000 hlutum gegn DJT í Truth Social, þann 12. júlí sem rann út daginn fyrir banatilræðið. „Follow the Money.“ Þá vekja menn athygli á að stóru amerísku sjónvarpstöðvarnar voru með beinar útsendingar á Trump Rally sem var óvenjulegt enda hafa annars þagað MAGA fundi Trump. Eitt getur fólk gengið að vísu og það er að CNN, BBC og RÚV birta sömu frétt enda saman í Truth Initiative sömu falslyginni á rauntíma. Svona er nú lífið einfalt meðal vestrænna lýðræðisþjóða að setjast fyrir framan Imbakassann …

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa