Fréttaritari Yle, Pirjo Auvinen (skjáskot SVT).
Finnskur fréttaritari sem sendir fréttir frá varnarmálaþinginu í Sälen í Svíþjóð bregst harkalega við þeim stríðsæsingartón sem sænskir ráðamenn hafa uppi.
Pirjo Auvinen, fréttaritari finnska Yle, segir í viðtali við Aktuellt:
„Ég brást mjög hart við og hugsaði: „Ja, þvílík ósköp!“
Fólk leikur sér ekki með orðið stríð
Hún tekur fram, að finnskir stjórnmálamenn myndu aldrei tjá sig á sama hátt og sænskir ráðamenn gera núna. Pirjo Auvinen segir:
„Slík orð og slíkar setningar eru ekki notuð í Finnlandi. Það væri túlkað sem verið væri að hvetja til stríðs eða vera stríðsæsingamaður. Fólk leikur sér ekki að orðinu stríð.“
Með lífið að veði
Á varnarmálaþinginu tilkynntu nokkrir leiðtogar eins og Michael Bydén, yfirhershöfðingi Svíþjóðar og Carl-Oscar Bohlin, almannavarnaráðherra Svíþjóðar, í útbelgdum orðum, að fyrir inngöngu Svía í Nató se tími kominn fyrir Svía að undirbúa sig fyrir stríðið. Carl-Oscar Bohlin þrumaði í ræðu sinni:
„Margir hafa sagt það á undan mér, en látið mig gera það í nafni embættisins. Minna innpakkað og á fölskvalausan hátt: Það getur orðið stríð í Svíþjóð.“
Ulf Kristersson forsætisráðherra bætti um betur og útskýrði að: