Frá palestínskum leiðtogum: Samkynhneigðum á að kasta með höfuðið á undan af þaki hæstu byggingar

Eftir Hamas-hryðjuverkaárásirnar gegn gyðingum þann 7. október 2023 hafa hópar eins og „Gays for Palestine“ og „Queers for Palestine“ verið hávær og sýnilegur hluti af mótmælum stuðningsmanna Hamas á bandarískum háskólasvæðum og á götum bandarískra borga og víða annars staðar á Vesturlöndum.

Nýlega lokuðu stuðningsmenn samkynhneigðra fyrir Palestínu leiðinni af hraðbrautinni til Disney World í Orlando, Flórída samtímis sem þeir héldu á borðum með boðskapnum „Frelsum Palestínu.“ Þessir hópar sýna og hrópa slagorð gegn gyðingum en ættu kannski að kynna sér betur og íhuga það sem áberandi palestínskir ​​íslamskir, stjórnmála- og menningarfulltrúar hugsa um þá.

Samkynhneigðir réttdræpir í Palestínu

MEMRI deilir yfirlýsingum frá palestínskum leiðtogum, þar sem fullyrt er í hörðum orðum að palestínska þjóðin „muni ekki samþykkja einn einasta samkynhneigðan“ á landi Palestínu og að samkynhneigðum „verði kastað með höfuðið á undan sér fram af þaki hæstu byggingar þeirra.“ Á einu myndskeiði er sýndur bútur úr áróðursræðu íslamska fræðimaðnnsins Abd Al-Rahman Al-Zayoud 17. september 2023 sem segir að „í íslömsku samfélagi er samkynhneigð homma og lesbía refsað með dauðanum.“

„Hvaða menning er á staðnum? Íslamska menningin. Ef þetta ákall stangast á við menningu á staðnum, verður að fara að lögum og sáttmálum Sameinuðu þjóðanna – sem kalla á samkynhneigð. Svo hvað vilja þeir frá okkur? Hvað vilja þeir fá af þessu samfélagi sem fylgir íslamskri menningu, sem refsar hommum og lesbíum með dauðarefsingu?“

Palestína mun aldrei sætta sig við neinn samkynhneigðan

Æðstiprestur Al-Aqsa moskunnar, Mohammed Saleem Ali, sagði í föstudagspredikun 6. júlí 2022 gegn samkynhneigðum „að Palestínska þjóðin mun ekki leyfa neinn samkynhneigðan í landinu, því slík rangfærsla kallaði reiði Allah yfir okkur öll.“

„Múslímska palestínska þjóðin okkar mun ekki sætta sig við að einn einasti samkynhneigður lýsi opinberlega yfir viðurstyggð sinni. Ætlið þið að leyfa einhleypingi samkynhneigðs á landi Jerúsalem og Palestínu? Á að leyfa það? NEI. Fólk okkar mun ekki leyfa, að stofnanir séu til sem stuðla að þessum viðbjóði á hinu blessaða og hreina landi Palestínu.“

Hendið þeim af þaki hæstu byggingar með höfuðið á undan

Palestínski íslamski fræðimaðurinn Sheikh Yousef Abu prédikaði 26. júní 2022:

„Samkynhneigðum á að kasta ofan af húsþökum, grýta þá til bana; Allah mun refsa okkur eins og Sódómu ef við berjumst ekki gegn þessum viðbjóði. Allah refsaði karlkyns og kvenkyns hórum aðeins með hýðingu eða steinkasti. En þegar hann ákvað að refsa samkynhneigðum sagði hann að kasta ætti þeim með höfuðið á undan sér af þaki hæstu byggingarinnar og síðan ætti að grýta þá að ofan.”

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa