Klaus Schwab segir elítunni að stundin sé runnin upp að þvinga mannkyn undir stjórn gervigreindar

Leo Hohmann skrifar:

Leo Hohmann er rannsóknarblaðamaður sem skrifar um glóbalismann, kristni, íslam, gyðinga og önnur mál, þar sem stjórnmál, menning og trúarbrögð renna saman. Greinin er sótt úr smiðju hans á leohomann.com


Stofnandi og forstjóri World Economic Forum, Klaus Schwab, upplýsti elítu fylgjendur sína um, að til þess að ná markmiðum glóbalismans þurfi að „þvinga“ mannkynið til „samstarfs“ við hin ókjörnu samtök. Tími þvingaðrar samvinnu er núna runninn upp.

Schwab gaf þessa yfirlýsingu í opnunarræðu sinni á ársfundi Nýju hetja WEF „New Champions“ sem einnig gengur undir nafninu „Sumar Davos“ í Dalian í Kína.

Hann hrósaði Kína fyrir efnahagsstefnu sína, sem glóbalistar líta á sem fyrirmynd miðstýringar fyrir áætlanagerð að ofan í háþróuðu tækni- og eftirlitsríki sem er rekið í gegnum snjallborgir, snjallrafbíla, snjallheimili, snjalltæki, snjallmæla, gervigreind, stafræn auðkenni og stafrænan gjaldmiðil. Allt þetta er sameinað í einum rofa sem hægt er að kveikja á og slökkva og ekki er í höndum endanotendans, það er að segja okkar – fólksins. Í draumaheimi þeirra lifum við sem þrælar fyrir forréttindi húsbænda okkar. Ef við gerum ekki eins og okkur er fyrirskipað, þá geta þeir slökkt á rafmagninu okkar, rafbílnum okkar, rafrænum stafrænu peningum okkar, – öllu saman.

Schwab fyrirskipaði fundargestum elítunnar sem komu saman í Kína, að þeir yrðu að „þvinga“ mannkynið til „samstarfs“ við World Economic Forum sem enginn hefur kosið. Þetta er ástæðan fyrir því, að Schwab sagði glóbalískum fylgjendum sínum á fundi fyrir tveimur árum að búast mætti við „reiðari heimi.“ Þegar fólk er þvingað til að lifa á þann hátt sem gengur gegn hagsmunum þess, þá hefur það tilhneigingu til að reiðast! Glóbalistarnir vita, að stefna þeirra sem tengist grænu hagkerfi, eilífum styrjöldum, alvarlegum takmörkunum á ferðalögum, búskap, kjötneyslu og fjölda annarra nauðsynlegra þátta í lífi millistéttarinnar, verður afskaplega óvinsælt og veldur borgarastyrjöld ofan á þá heimsstyrjöld sem þeir hafa þegar skipulagt.

Munum eftir því, að á leiðtogafundi heimsstjórna árið 2023 „World Governments summit“ þá sögðu hnattræningjarnir við okkur, að nauðsynlegt yrði að fá atburð sem ylli „áfalli“ svo hægt væri að hefja hina nýju heimsskipun. Núna eru þeir enn heiðarlegri og segja, að við verðum þvinguð til að samþykkja nýja heimsskipun þeirra.

Schwab sagði:

„Til að knýja áfram hagvöxt framtíðarinnar, þá verðum við að taka nýsköpun með opnum örmum og þvinga fram samstarf þvert á geira, svæði, þjóðir og menningu til að skapa friðsamari og án mismunar, sjálfbærari úthaldssama framtíð. Á þessum mikilvægu tímamótum er virk þátttaka allra hagsmunaaðila nauðsynleg til að tryggja sjálfbæra þróunarbraut.“

Auðvitað eiga stærstu hagsmunaaðilarnir af öllum, þeir sem greiða skatta til að fjármagna ríkisstjórnir, ekki sæti við borðið á elítufundum Schwab. Því er komið þannig fyrir. Þessi alþjóða rándýr líta á okkur sem gagnslausa matvarga, hluta af hjörð sem þarf að eyða til að varðveita hnattrænar auðlindir fyrir sig. Það er það sem fylgjendur Malthusian trúa.

Hér að neðan er önnur klippa þar sem Schwab sýnir svo kallaða „tækni fjórðu iðnbyltingarinnar“ eins og gervigreind. Þetta er ástæðan fyrir því, að þeir þurfa ekki jafn mörg okkar á jörðinni eins og áður. Gervigreind mun sinna flestum verkefnum fyrir elítuna. Þeir þurfa ekki eins marga mannlega þræla.

Schwab sneri aftur að efni fjórðu iðnbyltingarinnar á sama tíma og hann tvöfaldaði þema fundarins í ár, að það séu „takmörk fyrir hagvexti.“ Á máli glóbalista er „takmörk hagvaxtar“ kóði til að „virkja dagskrá fólksfækkunar.“

Takmörk hagvaxtar „Limits to Growth“ er titill á helsta riti glóbalismans sem Rómarklúbbnum gaf út árið 1972. Einn meðhöfundanna, Dennis Meadows, sagði í viðtali fyrir sex árum síðan að fækka yrði íbúum jarðar úr núverandi 8 milljörðum niður í 1 eða 2 milljarða. Meadows vonaðist til að hægt væri að framkvæma þessa miklu fólksfækkun á „friðsamlegan hátt.“

Taktið eftir, Meadows segist vilja sjá „snjallt einræði“ á jörðinni. Þetta er hin alþjóðlega tækni, þar sem lífi fólks verður stjórnað af vísindamönnum, verkfræðingum og öðrum „sérfræðingum.“ Ef stjórnmálamenn verða til samkvæmt þessari sýn á mannkynið, þá verða þeir aðeins höfðingjar til málamynda. Við sjáum það nú þegar gerast. Heldur einhver, að Joe Biden stjórni raunverulega einhverju? Samt er okkur sagt að þetta sé maðurinn sem við kusum til að vera fulltrúi okkar árið 2020. Allir sem trúa því, að Biden taki eigin ákvarðanir eða hafi tekið einhverjar mikilvægar ákvarðanir frá fyrsta degi, eru í grundvallaratriðum barnalegir og láta blekkjast. Hann er strengjabrúðu frambjóðandi og hefur verið það frá fyrsta degi og vegna þess að hann er orðinn elliær að því marki að glóbalískir stjórnendur hans geta ekki lengur falið það, þá verða þeir að skipta honum út fyrir nýja brúðu. Nýja brúðan mun verða fallegri og tala fjálglegra en hann/hún mun ekki frekar hafa umsjón með gjörðum sínum sem forseti en Biden hefur haft.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa