Minnst kynþáttamisrétti í Póllandi innan ESB

European union flag, three dimensional render, satin texture

Pólverjum, sem frjálslyndir fjölmiðlar hafa oft lýst sem hatara gagnvart útlendingum, eru umburðarlyndustu allra innan 13 aðildarríkja ESB sem tóku þátt í nýrri könnun um kynþáttahatur innan Evrópusambandsins (sjá pdf neðar á síðunni). Hlutfall fólks af afrískum uppruna sem verður fyrir kynþáttamisrétti í Póllandi er minna en helmingur af meðaltali innan ESB samkvæmt nýrri skýrslu frá mannréttindastofnun ESB.

Stofnun Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, FRA, birti nýlega niðurstöður rannsóknar sem gerð var í nokkrum aðildarríkjum á kynþáttafordómum fólks af afrískum uppruna víðs vegar um ESB.

Í Þýskalandi sögðust 76% aðspurðra hafa orðið fyrir kynþáttamisrétti á undanförnum fimm árum vegna húðlitar, uppruna eða trúarbragða. Í Austurríki var samsvarandi tala 72%. Pólland var með lægsta hlutfallið eða 20%.

Að meðaltali sögðust 45% aðspurðra í 13 ESB löndum sem könnuð voru, að þeir hefðu orðið fyrir mismunun. Á eftir Póllandi var hlutfallið lægst í Svíþjóð 25% og Portúgal 26%. Samkvæmt skýrslu FRA hefur þessi upplifun á mismunun aukist verulega frá síðustu rannsókn árið 2016 þegar meðalhlutfall svarenda sem sögðust upplifa mismunun var 39%.

Framkvæmdastjóri FRA, Michael O’Flaherty, lýsti þróuninni sem „sjokkerandi“ og hvatti aðildarríki ESB til að tryggja að „fólk af afrískum uppruna geti nýtt réttindi sín – án kynþáttafordóma og mismununar.“

Skýrsla FRA, sem ber heitið „Að vera svartur í ESB: Reynsla fólks af afrískum uppruna“ (Being Black in the EU: The Experience of People of African Descent), byggir á viðtölum við 6.752 manns af afrískum uppruna í Austurríki, Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Póllandi. , Portúgal, Spáni og Svíþjóð.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa