Neitaði að taka sprautuna og var rekin – fær 95 milljónir í skaðabætur

Kona frá Tennessee í Bandaríkjunum sem var rekin úr starfi fyrir að neita að taka Covid-19 sprautuna hefur fengið 687 þúsund dollara í skaðabætur… um 95 milljónir íslenskra króna.

Alríkisdómnefnd komst að þeirri niðurstöðu, að neitun konunnar, Tanja Benton, var vegna „einlægrar trúarskoðunar hennar.“ Af samtals 687.000 dollurum sem kviðdómurinn dæmdi voru 177.000 baklaun, 10.000 í skaðabætur og 500.000 í refsibætur.

Benton starfaði árin 2005 – 2022 hjá „BlueCross BlueShield í Tennessee, BCBST.“ Hún hélt því fram í málsókn sinni, að störf hennar fælu ekki í sér regluleg samskipti við fólk, þar sem hún vann að líftölfræði öllum stundum fyrir framan tölvuna. Sagðist hún einungis hafa samskipti við 10 – 12 viðskiptavini á ári og oft í gegnum tölvuna.

Engar athugasemdir gerðar vegna starfsins

Benton vann að heiman í eitt og hálft ár meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Aldrei var kvartað yfir störfum hennar fyrr en BCBST tilkynnti starfsmönnum að kröfur um bólusetningar yrðu innleiddar.

Hún neitaði að taka bóluefnið og sagði:

„Ég trúi því eftir persónulegar athuganir, að öll Covid-19 bóluefni séu unnin úr frumum eyddra fóstra. ÉG gat því ekki látið bólusetja mig með góðri samvisku vegna þess að bóluefnið myndi ekki aðeins saurga líkama minn heldur einnig móðga og vanvirða Guð.“

Þegar BCBST tilkynnti um bóluefniskröfuna lagði Benton fram beiðni um undanþágu vegna trúarbragða, en fyrirtækið neitaði og sagði að hún yrði að hætta störfum ef hún fylgdi ekki kröfum fyrirtækisins.

Var rekin

Benton andmælti og útskýrði að hún hefði ekki komist í snertingu við fólk í starfi sínu en var þá sagt að engar undantekningar væru gerðar. Ráðlagði fyrirtækið henni að sækja um störf hjá öðrum. Að lokum rak fyrirtækið Benton sem leiddi til þess, að hún höfðaði alríkismálið. Dalya Qualls samskiptastjóri BCBST segir:

„Við teljum að krafan um bólusetningu hafi verið ein besta ákvörðun sem við höfum tekið fyrir starfsmenn okkar. Við teljum að aðlögun okkar að kröfunni hafi verið í samræmi við lög.“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa