Paradís ofurskúrkanna í Genf

„Gleymdu öllu öðru, horfðu á myndskeiðið um það sem hnattræningjarnir eru að reisa í Genf, Sviss.“

Blaðamaðurinn Del Bigtree fullyrðir í The Higwire, að hnattræningjarnir, skúrkar alheims, séu að byggja upp valdamiðstöð sína í Genf.

Blaðamaðurinn Del Bigtree hefur lengi rannsakað „bóluefnið“ og „viðbrögðin“ við Covid. Hann segir núna skoðun sína á því sem glóbalista skúrkarnir séu að gera. Þetta snýst allt saman um alþjóðlega yfirtöku og byrjar í Genf, þar sem þeir leggja grunninn að heimsyfirráðum sínum. Del Bigtree ræðir viðbrögð stjórnmálamanna við Covid:

„Þetta var eitthvað sem kom alls staðar að úr heiminum. Eitthvað sem fékk allar ríkisstjórnir til að bregðast við nákvæmlega á sama hátt. Ég sá þetta svo skýrt, þegar Þegar ég var í Genf.“

Bigtree keyrði um götur Genf og skoðaði hvað var verið að byggja þar:

„Ég tók upp með farsímanum myndir af byggingum sem WEF er að láta reisa þar. Allar þessar byggingar hafa vopnaða verði og eftirlitsmyndavélar. Þarna er til dæmis verið að reisa nýja byggingu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Þarna eru skýjakljúfar. Byggingakranar. Hingað liggja göng beint frá flugvellinum. Þeir geta bókstaflega keyrt fólk inn og út af flugvellinum hvaðan sem það kemur úr heiminum. Þú getur lent bæði á svissnesku eða frönsku hliðinni og enginn mun vita að þú komst og fórst. Þeir eru að byggja sér heimsveldi þarna.“

Bigtree heldur áfram:

„Eins og kollegi minn sagði: Þetta er paradís ofurskúrkanna. Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á, hversu óhugnanlegt það var að sjá það sem verið er að byggja þarna.“

„Það er eins og verið sé að setja heimsyfirtöku á svið í þessum risastóru byggingum í Genf, þaðan sem ætlunin er að stjórna heiminum. Það er enginn vafi á því að reglur IHR (International Health Regulations) verða samþykktar. Ég ábyrgist að WHO-sáttmálinn verður samþykktur á endanum. Þeir ætla sér ekkert að hætta. Þetta er að gerast í raun og veru. Þeir ætla sér að yfirtaka heiminn. Þeir þola ekki Bandaríkin. Þeir hata stjórnarskrá okkar. Við stóðum í vegi fyrir áætluninni um að taka yfir heiminn. Við stóðum okkar vörð og 30% okkar tóku ekki sprautuna. Það er líklega ein af fáum ástæðum fyrir því, að þetta gekk ekki alveg upp, að við erum ekki öll með bólusetningaeftirlit í farsímum okkar. En ég vil segja, að þetta er raunverulegt. Þetta er að gerast.“

Bigtree varar almenning við skúrkunum: „Fólk. Þeir eru að koma! En ég veit að við getum unnið.“ Bigtree bendir á:

„Í næsta faraldri eða kreppu, þá munu þeir taka allt. Þeir nota heilsuna sem vopn gegn heiminum.“

Fullan þátt má sjá hér

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa