Þetta var kraftaverk. Guð var með Trump forseta. Trump forseti sagði fyrrverandi lækni Hvíta hússins Dr. Ronny Jackson, að síðustu millisekúndu fyrir skotin hafi hann hallað höfðinu og sú hreyfing hafi bjargað lífi hans.
Trump sagði Dr. Ronny Jackson að hann snéri höfðinu til hægri til að kíkja á skjá með tölum um ólöglega innflytjendur, þegar byssukúlan þaut í gegnum eyra hans.
New York Times greinir frá því, að Trump hafi sagt við Ronny Jackson í síma nokkrum klukkustundum eftir morðtilraunina:
„Þessi skjár sem ég kíkti á bjargaði lífi mínu. Öryggisverðirnir björguðu lífi mínu. Ef ég hefði ekki bent á skjáinn og snúið höfðinu til að horfa á hann, hefði kúlan farið í höfuðið á mér.“
Tölvulíking sýnir hversu nálægt Trump var að missa lífið á laugardaginn. Tölvulíkanið sýnir þrjár byssukúlur sem fara nákvæmlega sömu leið, sem er ólíklegt – og að Trump var tvisvar skotinn í eyrað en aðeins ein byssukúla fór í gegnum eyrað. En ferli fyrstu byssukúlunnar, þegar Trump snéri höfðinu sýnir, hversu nærri Trump var að fá kúluna í höfuðið í staðinn sbr. X hér að neðan:
Hér að neðan má sjá aðra hægfara upptöku, þar sem höfuðið hallast um leið og byssukúla fer í eyra Trumps:
Trump segir að Guð hafi bjargað lífi sínu í þetta sinn.