Tucker Carlson hefur birt nýtt myndband á vefsíðu sinni sem gefur innsýn í matvöruverslun í Moskvu í Rússlandi.
Myndbandið, sem er eingöngu fyrir áskrifendur, ber titilinn: „Matvörubúð í Moskvu“ og í lýsingu myndbandsins skrifar Tucker:
„Okkur hefur verið sagt að refsiaðgerðir gegn Rússlandi hafi haft hrikaleg áhrif á efnahag þess. Við heimsóttum matvöruverslun í Moskvu og fundum allt aðrar aðstæður.“
Í myndbandinu bendir Tucker á, að refsiaðgerðir Bandaríkjanna og annarra Evrópuríkja hafi engin áhrif haft á matvöruverslanir í Rússlandi þrátt fyrir að fjölmiðlar segi annað. Tucker sýndi einnig mikið úrval matvæla sem stórmarkaðurinn í Moskvu bauð upp á og tók fram, að verðið væri mun hagkvæmara en í Bandaríkjunum.
Moskva vingjarnlegri en nokkur borg í Bandaríkjunum
Tucker eyddi heilli viku í Moskvu og kynnti sér ýmisleg í borginni. Meðal annars heimsótti hann neðanjarðarlestarstöð og lýsti henni í hrifningu samanborið við slíkar t.d. í New York. The Hill segir frá þegar Tucker Carlson lýsti dvölinni:
„Það róttækasta fyrir mig á þeim átta dögum sem ég dvaldi í Moskvu var ekki bara leiðtogi landsins. Ég hef aldrei komið til Moskvu og það hafði mikil áhrif á mig … borgin var miklu vingjarnlegri en nokkur borg í mínu landi. Moskva er miklu hreinni og fagurfræðilega séð fallegri með byggingum sínum, mat og þjónustu – en nokkur borg í Bandaríkjunum.“
Sjáðu búðarferð Tucker Carlson í Moskvu á tveimur myndskeiðunum hér að neðan og frásögn hans og heimsókn á neðanajarðarlestarstöð í Moskvu á myndskeiði þar fyrir neðan: