64% íbúa í 12 ESB-ríkjum segja stjórnmálakerfið komið í hnút – 10% trúa á sigur Úkraínu

Bændur mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar ESB fyrr í ár (samsett mynd, skjáskot X).

Yfirgnæfandi meirihluti íbúa í 12 aðildarríkjum ESB segir stjórnmálakerfið komið í hnút eða virka illa í löndum sínum. Einungis tíundi hver trúir því, að Úkraína geti unnið stríðið, samkvæmt könnun Evrópuráðsins um utanríkistengsl (ECFR). Meirihlutinn vill að ESB þrýsti á Úkraínu til að semja við Rússa (sjá pdf að neðan).

Könnunin byggir á svörum frá 17.023 einstaklingum í 12 aðildarríkjum ESB: Austurríki, Frakklandi, Þýskalandi, Grikklandi, Ungverjalandi, Ítalíu, Hollandi, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Spáni og Svíþjóð.

Yfirgnæfandi meirihluti – 64% – segir stjórnmálakerfið ónýtt eða verulega gallað í heimalöndum sínum

Einungis 10% telja að Úkraína sigri Rússa

Könnun sýnir að einungis 10% telja að Úkraína vinni stríðið. 37% telja að málamiðlun verði líklegasta niðurstaðan og 19,5% telja að Rússar muni sigra.

ESB á að þrýsta á Úkraínu um að semja frið

64% í Ungverjalandi, 59% í Grikklandi, 52% á Ítalíu, 50% í Rúmeníu og 49% í Austurríki vilja að Evrópusambandið „þvingi“ Úkraínu til að ná samkomulagi við Rússa til að binda endi á stríðið.

Arabar ógn við íbúana

Meirihluti íbúanna líta á araba sem ógn við landið sitt. Sé einungis tekin með þau atkvæði sem tóku afstöðu með eða á móti, þá finnst meirihlutanum einnig það sama um íbúa frá Afríku.

Skýrsluna má lesa og hlaða niður hér að neðan:

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa