Í októberkönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna, sem sænska ríkisútvarpið lét gera, þá tapa Móderatar umtalsverðu fylgi á meðan Svíþjóðardemókratar bæta miklu við sig.
Samkvæmt könnuninni myndu aðeins 16,1% kjósa Móderatana ef kosningar væru í dag sem er 2,3% minna en í mánuðinum á undan.
Svíþjóðardemókratar bæta við sig 3% og mælast núna með 22%.
Bæði Kristilegir demókratar og Frjálslyndir ná ekki fjögurra prósenta markinu sem þarf til að komast á þing. Kristdemókratar eru að þessu sinni með 2,9% og Frjálslyndir fá bara 2,3% fylgi.
Í könnuninni eru því ríkisstjórnarflokkarnir þrír Móderatar M, Kristdemókratar KD og Frjálslyndir L samtals með 21,3% sem er 0,7% minna en Svíþjóðardemókratar fá.
- Vinstriflokkurinn 8,1% (+0,5%)
- Umhverfisflokkurinn 4,8% (-0,4%)
- Sósíaldemókratar 37,9% (-0,7%)
- Miðflokkurinn 4,1% (+0,1%)
- Frjálslyndir 2,3% (-0,7%)
- Móderatar 16,1% (-2,3%)
- Kristdemókratar 2,9% (+0,3%)
- Svíþjóðardemókratar 22,0% (+3,0%)