Reiðir bændur mótmæla á Ítalíu

Nú ná bændamótmælin einnig til Ítalíu. Yfir 150 dráttarvélum var ekið á laugardaginn til bæjarins Orte norður af Róm, þar sem bændurnir kröfðust meðal annars lægri skatta á eldsneytið. Lögreglan greip inn í, þegar bændur reyndu að loka vegi með heyböggum.

Uppreisn bænda hafa farið eins og eldur í sinu um Evrópu. Þúsundir bænda í Þýskalandi, Hollandi og Frakklandi hafa risið upp gegn grænni stefnu Evrópusambandsins og hækkun framleiðslukostnaðar ma. á dísil. Bændur á Ítalíu eru einnig þreyttir á háu eldsneytisverði og reglugerðum ESB sem ógna afkomu þeirra. Í borginni Orte söfnuðust 150 dráttarvélar saman á laugardaginn þar sem bændur kröfðust bættra kjara. Vegir voru einnig lokaðir með heybagga til að vekja athygli en lögreglan fjarlægði þær hindranir fljótt. Einnig hafa borist fregnir af mótmælum í borginni Bologna.

Dagblaðið Local ræddi við mótmælanda að nafni Felice Antonio Monfeli, sem sagði að „landbúnaðurinn hefði vaknað.“ Bændur hafa mörgum sinnum óskað eftir fundi við Giorgia Maloni forsætisráðherra eða öðrum fulltrúum ríkisstjórnarinnar en ekkert verið hlustað á það hingað til.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa