Hinn kunni alþjóðlegi lögfræðingur Reiner Fuellmic frá Þýskalandi var fyrir nokkru handtekinn í Mexíkó, þegar hann ætlaði ásamt konu sinni að endurnýja vegabréf. Þýsk yfirvöld vissu af því og notuðu tækifærið til að setja hann í járn inni í þýska sendiráðinu og flytja hann til Þýskalands og loka hann í fangelsi. Fuellmich er einn af fremstu leiðtogum heims í baráttunni gegn glóbalistunum og leiddi starf alþjóðlegrar kórónunefndar til að afhjúpa glæpi glóbalismans gegn mannkyni og draga ábyrga glóbalista fyrir dómstóla. Hér er birt grein rannsóknarblaðamannsins Leo Hohman um málið og sagt frá rannsóknarblaðamanninum neðar á síðunni.
Leo Homann skrifar á Substack: Þýski lögfræðingurinn Reiner Fuellmich var að vinna að verkefninu „Seinni Nuremburg réttarhöldin“ til að draga upphafsmenn Covid lífvopnasamsærisins til ábyrgðar, þegar hann var handtekinn um helgina af þýskum yfirvöldum í Mexíkó, þar sem hann og eiginkona hans dvöldu. Hann var tafarlaust fluttur til Þýskalands og settur í fangelsi.
Þurfti að endurnýja vegabréfið
Fuellmich hafði að sögn týnt vegabréfinu sínu og ætlaði að heimsækja þýska sendiráðið í Tiajuana í Mexíkó. Þegar hann kom á staðinn biðu þýsk yfirvöld eftir honum og handtóku hann og færðu í flugvél á leið til München í Þýskalandi, þar sem hann var fangelsaður. Sagt er að hann sitji núna í fangelsi í Frankfurt. Nákvæmar ákærur eru enn óljósar í skrifandi stund. En vinsamlegast biðjið bæn fyrir Reiner og fjölskyldu hans. Fuellmich hefur lögfræðileyfi í Þýskalandi og í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum.
UPPFÆRT: Þegar hann kom í sendiráðið á föstudaginn, þá biðu sex menn eftir honum. Þegar Dagmar Shoen, lögmanni hans, voru birtar ákærurnar fékk hún 30 síðna opinbert kæruskjal, þannig að handtakan var vandlega skipulögð og framkvæmd. Ákærurnar tengjast ásökunum Viviane Fischer, fyrrum liðsmanni Fuellmich í kórónunefndinni, sem sakaði hann um fjárhagslega misgjörð.
Þrír einstaklingar hafa skrifað undir ákæru á hendur Reiner. Kannski er vitlausasta hlið ákærunnar sú, að peningarnir sem Reiner er sagður hafa tekið, eru á bankareikningi (eða voru alla vega á bankareikningi) eins af þremur þeirra. Patrick Wood, ritstjóri Technocracy News, sem hefur áður unnið með Fuellmich við að grafa fram sannleikanum um Covid, sagði:
„Þeir tældu hann inn í þýska sendiráðið í Mexíkó, þar sem þeir rændu honum. Hann var ekki handtekinn í Mexíkó vegna þess að það er enginn framsalssamningur (milli Mexíkó og Þýskalands).“
Við verðum að stöðva viðleitni þeirra ofurríku til að útrýma okkur á þann hátt sem reynt var í Evrópu á fjórða áratugnum
Samkvæmt grein í Global Research undirbúa stuðningsmenn Fuellmich mótmæli gegn aðgerðum þýskra stjórnvalda. Fuellmich leiðir störf alþjóðlegrar glæparannsóknarnefndar sem vinnur að því að afhjúpa glæpsamlegt athæfi varðandi losun Covid veirunnar. Verið er að rannsaka óvenjuleg og glæpsamleg viðbrögð sem í grundvallaratriðum voru innleidd í hverju einasta landi í heiminum – þar á meðal lögboðið um eiturefnasprautur sem markaðssettar voru sem „bóluefni.“ Emanuel Pastreich, fyrrum forseti Asíustofnunarinnar, segir í grein hjá Global Research:
„Það sem ég vil leggja áherslu á, er að við verðum að sameinast um að styðja ekki aðeins hann, heldur þúsundir manna eins og hann sem standa gegn viðleitni til að breyta ríkisstjórnum í leikbrúður fyrirtækja, alþjóðlegra banka og milljarðamæringastéttarinnar og allra sníkjudýranna sem leynast þar að baki.“
„Við vitum, að ef við stöðvum ekki þessa viðleitni til að eyðileggja réttarríkið á öllum stigum í því skyni að skapa sérstakt ríki sem einungis tilheyrir hinum ofurríku og voldugu, þá munum við örugglega fá yfir okkur alþjóðlegt fasískt kerfi sem mun – ef því tekst það – útrýma okkur á nákvæmlega þann hátt sem reynt var í Evrópu á fjórða áratugnum.“
„Ég vil líka leggja áherslu á, að þessi viðleitni til að bæla niður einhvern sem vinnur svo hörðum höndum að því að framfylgja réttarríkinu og koma sannleikanum á framfæri einmitt á því augnabliki sem sóst er eftir að hefja heimsstyrjöld á milli Ísraels og Írans að meðtöldum Bandaríkjunum og hugsanlega mörgum öðrum löndum, er alls engin tilviljun heldur um hliðstæðu að ræða. Önnur viðleitnin er til að mata okkur á stríði sem grundvelli laga, stjórnarhátta og efnahagslífs og hin er tilraun til að eyðileggja allar undirstöður réttarríkisins og borgaraleg réttindi.“
Leggja út tálbeitur til að sundra andstöðunni gegn glóbalismanum
Hann sagði ennfremur:
„Ef við getum ekki nafngreint glæpina, ef við getum ekki borið kennsl á óvininn, þá verður engin leið til þess að hvorki falleg orð né hraðar aðgerðir geti leitt til neinnar mögulegrar jákvæðrar útkomu. Við vitum allt of vel, að þessi ósýnilegu völd hafa þegar lagt út tálbeitur fyrir okkur sem færa okkur ranga valkosti, hvort sem það er á milli Trumps og Bidens eða Hamas og Ísraels … valkosti sem er til að rugla okkur og etja okkur hvert gegn öðru, þannig að við getum ekki sameinast í andstöðu gegn þessu ofríki milljarðamæringastéttarinnar í öllum heiminum.“
Leo Hohmann er gamalreyndur rannsóknarblaðamaður og rithöfundur og nýleg bók hans „Stealth Invasion“ var meirihluta ársins 2017 meðal 10 bestu bóka Amazon.com um innflytjendamál. Hann hefur eytt áratugum í að rannsaka og skrifa um menntun, innflytjendamál, glæpi, stjórnmál og trúarbrögð. Greinar hans hafa birst í FrontPage Magazine, LifeSite News, Zero Hedge, Citizens Free Press, Technocracy.News, Canada Free Press, Global Research, The Gateway Pundit, World Net Daily og mörgum öðrum vefsíðum og ritum. Hohmann hefur verið í viðtölum við tugi staðbundinna og innlendra þáttastjórnenda, þar á meðal Lauru Ingraham hjá Fox News, Daniel Horowitz hjá Conservative Review, Alison Steinberg hjá OAN, Larry Elder, Brannon Howse, Dr. Peter Breggin, George Noory frá Coast to Coast, John B. Wells of Caravan to Midnight og Jan Markell frá Olive Tree Ministries. Hlutverk hans hefur alltaf verið að segja óttalaus sannleikann um stóru málefni samtímans og tengja saman einstök atriði, hvert svo sem það kann að leiða. Hann leitast einnig við að greina frá málum í sögulegu samhengi svo lesendur hans geti skilið meiri merkingu frétta dagsins.
Til að fá nýjar færslur og styðja verk Leo Hohmann er hægt að gerast áskrifandi á leohohmann.com