ESB lagði milljarða í vatnsleiðslur í Palestínu – voru rifnar upp til að byggja eldflaugar gegn Ísrael

Á síðasta áratug hefur ESB fjárfest milljörðum í að byggja vatnsleiðslur fyrir Palestínumenn sem búa á svæðum undir stjórn Hamas. Rörleiðslur sem Hamas gróf upp og breytti í eldflaugar sem skotið var á Ísrael.

Fyrir rúmlega 100 milljónir sænskra króna frá ESB var fyrsti áfangi afsöltunarstöðvarinnar í Khan Younis á suðurhluta Gaza-svæðisins vígður árið 2017. Þar er sjó breytt í drykkjarvatn og er knúinn rafmagni frá sólarorkugarði sem byggður var í nágrenninu.

Á árunum á eftir var afsöltunarstöðin stækkuð auk þess sem vatnslagnir voru lagðar til íbúa Gazaborgar á norðurhluta Gaza-svæðisins. Féð, samtals rúmlega 200 milljónir evra, nálægt 2,5 milljörðum sænskra króna eða 32 milljörðum íslenskra króna, kom frá ESB og Þýskalandi.

Breska Telegraph skrifar, að ESB hafi einnig byggt vatnsleiðslur í Jenin á Vesturbakkanum, sem er lýst sem miðstöð Hamas. Samkvæmt breska blaðinu, sem gerði greiningu á fjárfestingum Evrópusambandsins í vatnsframkvæmdum í Palestínu undanfarin tíu ár, hafa um 100 milljónir evra, rúmlega 1,1 milljarður sænskra króna, verið fjárfest í byggingu vatnsleiðslna á svæðum sem hryðjuverkasamtökin Hamas hafa stjórnað. Alls hefur ESB fjármagnað um fimm þúsund vatnsleiðslur á Gaza og Vesturbakkanum.

Endurbyggð í eldflaugar

Í maí 2021 birtu al-Qassam hersveitir Hamas kvikmynd sem sýnir hvernig vatnsleiðslurnar eru grafnar upp og notaðar til að smíða eldflaugar. Annað myndband sýnir hvernig Hamas felur eldflaugarnar í neðanjarðargöngum á Gaza-svæðinu, þaðan sem þeir skjóta þeim síðan á Ísrael.

Vatnsrör geta verið úr PVC-plasti og einnig úr stáli og öðrum málmum og sama tegund af rörum er einnig almennt notuð af fólki í hinum vestræna heimi sem hefur eldflaugasmíði að áhugamáli. ESB og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa ítrekað kennt Ísraelum um skemmdarverk á vatnsleiðslum Palestínumanna en ekki tekið á því, að Hamas sjálft hefur samþykkt að grafa þær upp.

Ungverjaland: Stöðva alla aðstoð

Ungverski ESB-þingkonan Kinga Gál krefst þess í myndbandi sem ungverski stjórnarflokkurinn Fidesz birti á Facebook, að aðstoð ESB við Palestínumenn verði stöðvuð. Sterkur grunur leikur á, að stór hluti þeirra 691 milljóna evra sem Brussel veitti Palestínumönnum í aðstoð hafi einnig runnið til hryðjuverkasamtakanna Hamas. Kinga Gál krefst þess. að rannsakað verði í hvað peningarnir hafa farið og vill láta hætta öllum stuðningi við palestínsk yfirvöld þegar í stað.

Ungverska ESB-þingkonan Kinga Gál

Fidesz var áður hluti af hópi frjálslyndra á ESB-þinginu, EPP, en neyddist til að yfirgefa flokkshópinn eftir deilur við ólígarkann George Soros, sem hefur mikil áhrif á stjórnmálamenn í Brussel. Flokkurinn er utan stjórnmálahópa ESB-þingsins.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa