Orbán hitti bændurna í Brussel – hinir leiðtogarnir földu sig

Leiðtogar ESB földu sig, þegar þúsundir bænda gerðu umsátur um Evrópuþingið sl. fimmtudag. Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, kaus þess í stað að fara og ræða við mótmælendurna.

Viktor Orbán kom til Brussel til að taka þátt í leiðtogafundi ESB á fimmtudag og hitti þá bændur sem mótmæltu fyrir utan.

Bertalan Havasi, blaðafulltrúi forsætisráðherrans, sagði við fréttastofuna MTI, að Orbán hefði rætt við bændur um nauðsyn þess, að evrópskir leiðtogar færu að gefa raunverulegan gaum að hagsmunum almennings. Viktor Orbán sagði við blaðamenn á staðnum:

„Okkur vantar nýja leiðtoga, nýja stjórnmálamenn í Evrópu, sem eru fulltrúar fólksins í raun og veru. Eins og er – hvort sem um er ræða innflytjendamál eða stríðið í Úkraínu – þá er ekki hlustað á manninn á götunni. Það er lýðræðisbrestur.“

Reiðir bændur fylltu torgið við Evrópuþingið í Brussel í vikunni sem meðal annars kveiktu elda og köstuðu eggjum í þinghúsið. Mótmæli bænda gegn árásum ESB hafa farið eins og eldur í sinu í mörgum löndum ESB.


Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa