Glæpamenn frá glæpahópum Svíþjóðar líta á Noreg sem „veisluhlaðborð“ segir Stefan Larsson, yfirmaður samhæfingardeildar glæpadeildar sænsku lögreglunnar (Noa) í viðtali við norska dagblaðið Dagbladet.
„Ég get ímyndað mér, að það sé orðið þröngt á fíkniefnamarkaðurinn í Svíþjóð, vegna þess að viðskiptavinahópurinn er takmarkaður. Markaðurinn mettast á tiltölulega skömmum tíma. Þá verða þeir að stækka markaðinn.“
Larsson segir við blaðið, að sænska eiturlyfjaverslunin geti verið að byrja að hasla sér völl í Noregi. Árið 2020 fóru sænskir glæpamenn að beina sjónum að Noregi með svikum, aðallega gegn öldruðum konum.
Að sögn Dagbladet hafa þau glæpasamtök, sem hafa unnið að stórfelldum svikamálum í Noregi, náin tengsl við Foxtrot-klíkuna.
Norski bankinn DNB staðfestir í skýrslu (sjá pdf að neðan), að á síðasta ári hafi orðið 26% aukning á svikamálum í garð viðskiptavina bankans. Bankinn skrifar að skýr tengsl séu á milli svikamála og skipulagðra glæpasamtaka. Bankinn skrifar:
„DNB fylgdist með sænskri glæpastarfsemi haustið 2023 sem athafnar sig í Noregi og fremur svikaglæpi gegn viðskiptavinum okkar.“