Í þessari viku hefst Evrópumeistarkeppnin í handbolta í Þýskalandi og eru Svíar beðnir um að klæðast hvorki landsliðstreyjum né veifa fánum.
Samtökin „Sænskir handknattleiksáhugamenn“ hvetja stuðningsmenn til að fara varlega á meðan á meistaramótinu stendur. Tveir Svíar voru myrtir í hryðjuverki í Brussel í tengslum við landsliðsleik í knattspyrnu í fyrra.
Hryðjuverkamaðurinn í Brussel þekkti Svíana á landsliðsbolunum. Tony Sonebäck, stjórnarmaður Sænskra handknattleiksáhugamanna hefur sett skýrar reglur varðandi blágulan fatnað. Hann segir við TV4:
„Við hvetjum stuðningsmenn til að veifa ekki sænskum fánum eða treflum eða ganga um í sænskum landsliðsbol eða peysum í bænum.“
Hundruð Svía eru komnir til Þýskalands vegna handboltakeppninnar. Sonebäck segir við stuðningsmenn að bera einungis landsliðspeysur/boli í stúkunni á leikvangnum en ekki úti í bæ. Enn fremur eiga stuðningsmenn sænska landsliðsins að „halda sér til baka“ og ekki láta bera á sér í Þýskalandi.