Tommy Robinson handtekinn í mótmælum gegn gyðingahatri

Í mótmælum tugþúsunda manna gegn gyðingahatri í London um helgina, þá handtók lögreglan íslamagagnrýnandann Tommy Robinson. Opinberar ástæður eru sagðar vera þær, að hann hafi með nærveru sinni „valdið ónæði á svæðinu.“

Mótmælt var í miðborg Lundúna á sunnudag, degi eftir að stuðningsmenn Hamas og Palestínumanna voru með sín mótmæli gegn Ísrael í London.

Mætti til að skrifa frétt um mótmælin

Meðal þátttakenda voru Boris Johnson fv. forsætisráðherra Bretlands auk fulltrúa frá ríkisstjórninni sem lýstu yfir stuðningi við gyðinga. Var ísraelskum og breskum fánum veifað og haldið á spjöldum sem á stóð „Aldrei aftur er núna“ og „Núll umburðarlyndi gagnvart gyðingahatri.“ Að sögn skipuleggjenda mótmælanna var þetta stærsta samkoma gegn gyðingahatri í London í tæpa öld.

Tommy Robinson var mættur sem blaðamaður til að skrifa frétt um mótmælin. Lögreglan hefði tilkynnt fyrir mótmælin að Robinson væri ekki velkominn. Þegar hann mætti á staðinn ásakaði lögreglan Robinson fyrir að valda ónæði með nærveru sinni. Er Tommy Robinson neitaði að yfirgefa staðinn var hann handtekinn.

Á myndskeiðinu hérna að neðan má sjá hvernig handtakan fór fram, auk fyrri samtala við lögregluna.

https://twitter.com/TRobinsonNewEra/status/1728768996709708255

Robinson var enn í haldi mánudagsmorgun

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa