Tucker Carlson kemur í óvænta heimsókn til Julian Assange í fangelsinu

Carlson birti mynd af sér fyrir utan Belmarsh fangelsið með fyrirsögninni: „Heimsókn til Julian Assange í Belmarsh fangelsinu í morgun.“

Tucker Carlson sagði á X-inu í gær, að hann væri að fara í heimsókn ti Julian Assange, stofnanda Wiki Leaks, í Belmarsh fangelsinu í London. Assange á yfir höfði sér framsal til Bandaríkjanna til að mæta í réttarhöldum vegna „ákæru um að hafa tekið við, haft undir höndum og miðlað trúnaðarupplýsingum til almennings samkvæmt njósnalögum.

Tucker Carlson tilkynnti á fimmtudag að hann væri að heimsækja blaðamanninn Julian Assange í fangelsinu. The Messenger greinir frá því, að Tucker hafi birt myndina af sér fyrir utan fangelsið og sagst vera að fara í heimsókn til Julian Assange. Eftir að Carlson hætti á X, þá birtir hann nýju útgáfuna af þætti sínum á X-inu og þar hefur hann tekið viðtöl við Donald Trump, Andrew Tate, Ice Cube og fleiri.

Á yfir höfði sér 175 ára fangelsisdóm

Assange á yfir höfði sér framsal til Bandaríkjanna og er ákærður fyrir móttöku, vörslu og miðlun trúnaðarupplýsinga til almennings samkvæmt njósnalögum. Assange á yfir höfði sér allt að 175 ára fangelsisdóm verði hann sakfelldur fyrir birtingu upplýsinganna á Wikileaks síðu sinni. Assange hefur verið á bak við lás og slá í Englandi síðan 2019.

Alls á Julian Assange yfir höfði sér 17 ákærur sem gætu leitt til 175 ára fangelsisdóm verði hann framseldur til Bandaríkjanna. Ástralir vilja fá hann framseldan til Ástralíu en Assange er ástralskur ríkisborgari.

Bandarískir saksóknarar halda því fram að Assange hafi með ólöglegum hætti aðstoðað Chelsea Manning, fyrrverandi leyniþjónustumann bandaríska hersins, við að stela þúsundum leynilegra hergagna sem birtar voru á WikiLeaks árið 2010. Þar á meðal voru upplýsingar sem afhjúpuðu bandaríska stríðsglæpi í Írak og fyrri ótilgreindar upplýsingar um njósnir bandarískra stjórnvalda um borgara sína.

Vilja fá Assange til Ástralíu

Undanfarna mánuði hefur ástralska ríkisstjórnin leitað til Biden stjórnarinnar í Bandaríkjunum og beðið hana um að falla frá ákæru á hendur Assange sem er ástralskur ríkisborgari. Stjórn Biden hefur hins vegar virt að vettugi bón ástralskra stjórnvalda en hefur þess í stað stundað leynilegar rannsóknir á Julian Assange í því skyni að fá hann framseldan til Bandaríkjanna.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa