Tyrkland vill fá F-16 flugvélar fyrir að samþykkja Nató-aðild Svíþjóðar

Bandarísk herþota, mynd © U.S. Air Force by Staff Sgt. Deana Heitzman/Public domain

Valdaelítan í Svíþjóð heldur áfram að sækjast eftir aðild að hernaðarsamtökum Nató undir forystu Bandaríkjanna. En það sem Tyrkir vilja í raun og veru til að klára aðildarumsóknina er að geta keypt F-16 vélar frá Bandaríkjunum. Tobias Billström utanríkisráðherra Svíþjóðar staðfestir, að málin tengjast á augljósan hátt, segir í frétt SVT.

Í sumar tilkynntu sigri hrósandi fjölmiðlar í Svíþjóð, að Tyrkir segðu já við aðild Svía að Nató. Þá var júlí. Síðan hefur ekkert gerst.

Fjárkúgun Tyrklands

Í september var sagt, að Tyrkir segðu já við Nató-umsókn Svíþjóðar, ef Bandaríkin selji F16 flugvélar til landsins. Tobias Billström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, staðfesti í vikunni, að málin tengdust. Hann segir í viðtali við sænska ríkissjónvarpið SVT:

„Við vitum nú þegar, að þessi mál tengjast, því Erdogan forseti hefur sjálfur sagt það. Það er afskaplega lítið leyndarmál, að hlutirnir eru þannig, án þess að tengjast.“

Að sögn sænsku ríkisstjórnarinnar hafa Svíar staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Tyrklandi.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa