Barnakynlífsvæðing vinstri manna tekin fyrir í heimildarmynd

Heimildarmyndin „Stríðið gegn börnunum“ The War on Children tekur fyrir nákvæmar áætlanir vinstri manna um að hafa áhrif á og kynlífsvæða börnin – og þar með stjórna komandi kynslóðum. Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Rand Paul segir:

„Allir Bandaríkjamenn verða að opna augun fyrir þeirri illsku sem börnin okkar verða fyrir, svo að við getum gert nauðsynlegar ráðstafanir til að leysa vandamálin.“

Heimildarmyndin var gerð af leikstjóranum Robby Starbuck og eiginkonu hans Landon. Skilaboðin eru þau, að það er markvisst stríð í gangi gegn börnunum þar sem þau verða fyrir ýmsum eyðileggjandi hugmyndum vinstrisinna. Reynt er að hafa áhrif á óþroskuð börn og þeir sem markaðssetja áróðurinn og reyna að gera frávik að stöðlum gera sér fyllilega grein fyrir því, að börnin verða fyrir skaða af þeim. Heimildarmyndin var frumsýnd á X-inu fyrr í febrúar og höfundurinn þakkar Elon Musk fyrir að „leyfa höfundum að búa til kvikmynd án ritskoðunar.“

Í kynningu heimildarmyndarinnar segir:

„Við afhjúpum stríðið sem háð er gegn börnum í dag með kynjahugmyndafræði… kynvæðingu leikja, kynlífssölu, barnaklámi á netinu, TikTok, Big Pharma og margt fleira. Hingað til hafa aðeins hlutar af þessu stríði verið opinberaðir, en þessi byltingarkennda heimildarmynd setur allt púsluspilið saman sýnir frá á stríðsáætlunina sem vinstrimenn hafa til að geta stjórnað framtíðinni.“

„Til að vinna þetta stríð verður þú að skilja aðferðirnar sem óvinurinn notar til að sigra þig. Síðan kemur tími til sóknar. Ertu reiðubúinn til að gerast sá kappi sem börnin þarfnast eða læturðu heimselítuna ákveða framtíðina og gera börnin okkar að hermönnum sínum?“

Sjáðu myndina hér að neðan:

Getur verið slítandi að horfa á myndina

Elon Musk frumkvöðull og öldungardeildaþingmaðurinn Rand Paul mæla með myndinni. Í heimildarmyndinni er rætt við uppljóstrara, fólk sem var limlest á kynfærum sem börn, fórnarlömb mansals, leiðtoga fyrirtækja sem afhjúpa áætlun um að kynlífsvæða börnin, stjórnmálamenn, þekkt fólk á samfélagsmiðlum, „dragdrottningar“ og fólk úr klámbransanum. Rand Paul segir:

„Stríðið gegn börnunum er andlega slítandi og oft erfitt að horfa á. En allir Bandaríkjamenn verða að opna augun fyrir þeirri illsku sem börnin okkar verða fyrir svo við getum gert nauðsynlegar ráðstafanir til að leysa vandann.“

Donald Trump Jr. skrifar:

„Sem faðir finnst mér engin mikilvægari kvikmynd núna fyrir foreldra og afa og ömmur. Þið verðið að skilja og vita hvejir er á eftir börnunum ykkar og hvers vegna.“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa