„Stjórn Biden flytur inn milljónir þriðja heims innflytjenda til að búa ólöglega hér í Bandaríkjunum og segir þeim samtímis, að hvíta fólkið sé ástæða vandamála þeirra. Hvernig ætli það fari á endanum?“ spyr Tucker Carlson.
Meira en 10 milljónir ólöglegra innflytjenda – aðallega karlmenn á herskyldualdri frá Afríku, Miðausturlöndum og Rómönsku Ameríku hafa flykkst til Bandaríkjanna eftir að Joe Biden tók við embætti forsetans í janúar 2021. Fjölmiðlasamstæða demókrata tjáir ólöglegu innflytjendunum, að hvítt fólk – sérstaklega hvítir karlmenn – séu vandamál alheims. Á jóladag stakk svartur maður tvær unglingsstúlkur í veitingasal aðal járnbrautarstöðvarinnar í New York.
Hnífárásarmaðurinn hrópaði: „Ég vill að allir hvítir séu dauðir.“
Stephen Mille, ráðgjafi Trumps var í þætti Tucker Carlson ásamt fleirum til að ræða allan þennan fjölda ólöglegra manna á herskyldualdri frá þriðjaheimslöndum sem Joe Biden gerir kleift að flykkjast til Bandaríkjanna. Sjá má þáttinn í X færslunni hér að neðan: