Ef vér slítum í sundur lögin, munum vér slíta og friðinn …

Sótt er að Íslandi úr öllum áttum. Í Davos vefa vefararnir net um gjörvallan heim, hnignun og upplausn blasir við.

Á Íslandi er guðleysi tekið við, Kristur rekinn úr opinberu rými, æðsti embættismaður þjóðarinnar grettir djöflamerki framan í fólk og setur vindhana í stað kross á kirkju þjóðarinnar.

Hallur Hallsson, blaðamaður, setur kjarna átaka líðandi stundar undir smásjána. Hér í nýrri grein.


Hallur Hallsson skrifar:

Vatnaskil urðu fyrir um þrjátíu árum þegar Vesturlönd hófu að taka upp guðlausan sið sem boðar að manneskjan komi úr myrkri þar sem ekkert er og hverfi í myrkrið að loknu lífshlaupi. Horfið var frá kristnu lífi í ljósi, kærleika, jafnrétti og upprisu. “Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið,” sagði Jesús Kristur fyrir tvö þúsund árum. Hann kvaðst varða leiðina til Drottins, skapara himins og jarðar, bauð heilagan anda. Hálfur annar áratugur er síðan kristnikennslu var hætt á Íslandi og Jesús Kristur hvarf úr kennslubókum. Nú eru börn kynvædd og limlest í nafni trans-húmanisma kennt af aðgerðasinnum. Við höfum tekið upp nýjan sið guðleysis sem hrærir saman ólíkum siðum. Vindhani settur í stað kross á Bessastaðakirkju, forseti veifar hornum Satans. Verið er að slíta í sundur lögin og friðinn. Fyrir rúmum þúsund árum mælti Þorgeir ljósvetningagoði hin fleygu orð:  “…Ef vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“

HNIGNUN & UPPLAUSN

Við sjáum skelfilega hnignun evrópskra og amerískra borga; glæpagengi, fátækt á götum, fólk í tjöldum, dópað fólk, mannlega hnignun, stríð í Austurvegi, Endalaus stríð í Mið-Austurlöndum, stjórnlausar innrásir hælisleitenda. Við sjáum hnignun Íslands, hnignun Reykjavíkur. Austurvöllur svívirtur, Jón Sigurðsson atyrtur, öskrað að þingmanni að fokka sér, palestínskum fánum flaggað, leigubílastríð á götum, konum nauðgað í leigubílum. Ísland hervæðist, KEF natovöllur, Helguvík athvarf kjarnorkukafbáta, B2 váfuglar voma yfir Íslandi. Bændur, sjómenn, einyrkjar, öryrkjar, aldraðir afskiptir; landbúnaður upp við vegg, fiskimið og orkulindir skulu undir Brussel. Guðlaust Alþingi hefur selt fullveldi þjóðarinnar úr landi, á leið inn í guðlaust alheimsríki í þágu hinna ofsaríku og voldugu wefara í Davos. Jafnrétti í glatkistu. Brussel er leppur fyrir Nato, hernaðararm amerískrar hermaskínu í Washington.

LEPPAR WEFARANNA

Festa, íslenskur leppur wefaranna með elíturáðstefnur undir merkjum Reset styrkt af flugufólki í fyrirtækjum þjóðarinnar í Landsbanka og Landsvirkjun og sendiráðum. Orð DV segir að forstjóri B-team alþjóðarisa Halla Tómasdóttir á mála hjá wefurnum í Davos og hinna illræmdu schwab hyggist bjóða sig fram til forseta Íslands. Ef áform þessa fólks ná fram að ganga hverfur íslenskt lýðveldi; menning, tunga og erindi Íslendinga við veröldina.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa