Stríð á milli Nató og Rússlands óhjákvæmilegt ef ráðamenn ESB senda hermenn til Úkraínu

Dmitry Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns segir, að Nató og Rússland enda í stríði ef vestræn ríki senda hermenn til Úkraínu. (Mynd: Wikipedia/US Army).

Átök milli Nató og Rússlands eru „óhjákvæmileg“ ef hermenn frá vestrænum löndum eru sendir til Úkraínu, segir Dmitry Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að Frakklandsforseti opnar á að senda hermenn í Úkraínu.

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hélt paníkfund í París í gær til að æsa upp einstök ESB-ríki til að senda herlið til Úkraínu. Eftir yfirlýsinguna hafa leiðtogar nokkurra ríkja „fullvissað um að svo verði ekki.“ Olaf Scholtz, kanslari Þýskalands og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar hafa gefið út yfirlýsingu um að þeir munu ekki senda her til Úkraínu.

Í Moskvu er illa tekið á móti yfirlýsingum Frakklandsforseta. Politico greinir núna frá því, að Dmitry Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta (á mynd th.), segi að Nató-hermenn í Úkraínu myndu örugglega leiða til beinna átaka. Peskov segir samkvæmt Politico:

„Þessi lönd verða líka að meta og vera meðvituð um þetta og spyrja sig, hvort það sé í samræmi við hagsmuni þeirra sem og hagsmuni íbúa landa þeirra“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa