Eftirmaður Merkel vill að innflytjendur sverji Ísrael hollustu til að fá ríkisborgararétt

Myndin er frá stuðningsfundi við Ísrael í Berlín 8. október s.l. (© Leonhard Lenz).

Friedrich Merz, eftirmaður Angelu Merkel sem leiðtogi Kristdemókrata í Þýskalandi, krefst þess að innflytjendur verði látnir sverja hollustueið til Ísrael, ef þeir eigi að geta fengið ríkisborgararétt í Þýskalandi.

Að sögn Merz ættu allir sem vilja verða þýskur ríkisborgari að uppfylla ýmsar kröfur, þar á meðal kröfu um hollustuheit við ísraelska ríkið. Merz segir í viðtali við Tagesspiegel:

„Kröfurnar verða að fela í sér varanlega tryggingu frá þeim sem fá ríkisborgararétt, að þeir styðji styðja öryggi Ísraels, sem er á endanum grundvallarhagsmunir þýska ríkisins.“

„Sá sem skrifar ekki undir þetta á ekki heima í Þýskalandi.“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa