ESB-ríki íhuga að senda hermenn til Úkraínu

Emmanuel Macron Frakklandsforseti kallaði til skyndifundar í París á mánudag til að ræða stöðu Úkraínustríðsins (skjáskot facebook).

Leiðtogar sumra ríkja í Evrópu íhuga að senda eigin hermenn til Úkraínu samkvæmt tvíhliða samningum ríkjanna við Úkraínu. Þetta segir Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, að sögn Reuters. Var hann staddur á skyndifundi í París sem Emmanuel Macron Frakklandsforseti hélt til að ræða viðbrögð vestrænna ríkja við stöðunni á vígvellinum í Úkraínu. Macron vill senda franska hermenn í stríð gegn Rússlandi.

Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sagði:

„Hópur aðildarríkja ESB og Nató íhugar að senda herlið sitt til Úkraínu á grundvelli tvíhliða samninga. Þetta mun leiða til mikillar stigmögnun stríðsins.“

Stríðsæsingafundur í París

Að sögn forsætisráðherrans mun Slóvakía undir engum kringumstæðum senda hermenn til Úkraínu, jafnvel þótt það kostaði hann forsætisráðherra stólinn. Fico skrifar í færslu á facebook:

„Eins og við spáðum í morgun á nokkrum fundum í Bratislava var algjör stríðsæsingur í París. Ekki eitt orð sagt um frið. Ég er persónulega afar sorgmæddur yfir því. Í París endurtók ég þá niðurstöðu úr samningaviðræðum ríkisstjórnarinnar og samstarfsríkjanna í dag, að við munum aldrei samþykkja að senda slóvakíska hermenn í stríð í Úkraínu.“

Sameiginlegt „stökk“ nauðsynlegt

Emmanuel Macron Frakklandsforseti útilokar ekki að Evrópa senda franska hermenn til Úkraínu, segir í frétt Al Jazeera. Macron segir samkvæmt Reuters:

„Við munum gera allt sem við þurfum að gera til að koma í veg fyrir sigur Rússlands.“

Franski forsetinn segir í færslu á X (sjá að neðan), að nauðsyn sé á „sameiginlegu stökki“ meðal ríkja Evrópu í Úkraínumálinu. Robert Fico staðfestir að sumir evrópskir leiðtogar séu sannarlega tilbúnir til að senda hermenn til Úkraínu. Óljóst er nákvæmlega hvaða lönd eiga í hlut. Hins vegar ætla hvorki Bandaríkin né Nató að senda hermenn, sagði embættismaður í Hvíta húsinu við Reuters.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa