Rumble lokar í Brasilíu – neitar að ritskoða hægri skoðanir

Mjög umdeild – og hugsanlega ólögleg – kosning sósíalistans Lula da Silva sem forseta Brasilíu voru ekki einu slæmu fréttirnar sem ásækja lýðræðið í stærsta landi Suður-Ameríku.

Eftir að Joe Biden var „kjörinn“ í Bandaríkjunum og sendi William Burns, forstjóra CIA, til Brasilíu sem fyrsta opinbera sendifulltrúa sinn, þá fóru hlutirnir af hjörum í brasilíska dómskerfinu.

Linnulaus þrýstingur á samfélagsmiðla að ritskoða hægri skoðanir

Sérstaklega hafa glóbalistar og stjórnlausir hæstaréttardómarar í Brasilíu, tekið margvíslegar ákvarðanir sem eru bæði fáránlegar og samtímis skaðlegar fyrir samfélagið. Margir voru strax ritskoðaðir og þrýstingurinn hefur verið linnulaus á samfélagsmiðla að falla á kné fyrir harðstjórninni.

Myndbanda-, vefhýsingar- og skýjaþjónustufyrirtækið Rumble, með aðsetur í Ontario, Kanada, neitaði að fylgja dómsúrskurði í janúar um að loka íhaldssamri veitu Monark. Rumble áfrýjaði málinu til brasilíansks réttar í júní. En á endanum fékk Rumble nóg og ákvað að „yfirgefa“ Brasilíu og hindra aðgang að miðlinum þar, frekar en að framfylgja ritskoðun harðstjórnar landsins.

Rumble vonar að brasilíska dómskerfið hnekki ákvörðunum sínum og að Rumble verði aftur aðgengilegt í landinu.

Hvikum ekki frá markmiðum um opið Internet

Chris Pavlovski skrifar á X (sjá að neðan):

„Nýlega kröfðust brasilískir dómstólar, að við fjarlægðum ákveðna höfunda frá Rumble. Sem hluti af verkefni okkar til að endurheimta ókeypis og opið internet, þá höfum við skuldbundið okkur til að hvika ekki frá markmiði okkar. Notendur með óvinsælar skoðanir hafa frjálsan aðgang að vettvangi okkar samkvæmt sömu skilmálum og milljónir annarra notenda okkar. Í samræmi við það höfum við ákveðið að loka fyrir aðgangi að Rumble fyrir notendur í Brasilíu, á meðan við stríðum gegn lögmæti krafna brasilískra dómstóla.“

„Við erum vonsvikin yfir þeim dómsúrskurði sem meinar brasilísku þjóðinni að skoða mikið úrval af efni Rumble. Þessi aðgerð mun ekki hafa efnisleg áhrif á viðskipti okkar en við vonum að brasilískir dómstólar endurskoði ákvarðanir sínar, svo við getum hafið þjónustu fljótlega að nýju.“


Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa