San Francisco hyllir einræðisherrann Xi Jinping með fánum kommúnismans þegar Xi og Joe Biden hittast

San Francisco heilsar Xi Jinping með kommúnistafánum og skrúðgöngu

San Francisco rúllaði út rauða teppinu fyrir Xi Jinping, einræðisherra stærsta kommúnistaríkis heims og formanns kommúnistaflokks Kína sl. þriðjudag. Vinstri sinnuð borgarstjórn í höndum demókrata fyrirskipaði skrúðgöngu til heiðurs kommúnistaforingjanum með götum klæddum kommúnistafánum. Kínverskir Bandaríkjamenn tóku fagnandi á móti leiðtoga sínum Xi, þegar bílalest hans keyrði fram hjá.

Kínverskir Bandaríkjamenn hylla kommúnistaleiðtogann

Kínverska ríkissjónvarpið var á staðnum til að greina frá heimsókn hans hátignar, formannsins mikla, Xi-Jinping.

Hvenær verður mandarín gert að opinberu tungumáli í San Francisco? Vonandi dettur Joe Biden ekki í flugvélatröppunni í þetta sinn.

Á sama tíma gerði landamæraeftirlitið upptæk 500 pund af fentanýli í vikunni. Það dugar til að drepa heila bandaríska borg. Að sögn frá Kína. Að lokum má geta þess, að auðvitað er glæpafjölskyldan Biden fullkomlega í eigu kínverskra kommúnista.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa