Í færslu á einni af opinberum rásum Fatah fagnar flokkurinn fjöldamorðum helgarinnar á Ísraelum og líkir fórnarlömbunum við rottur.
„Palestínumenn mylja Ísraelsrottuna.“ Þannig fagnar Fatah, stjórnarflokkurinn á palestínsku svæðunum, þeim villimannslegu fjöldamorðum sem Hamas hefur framið á hundruðum óbreyttra borgara. Fatah gengur því sömu braut og nasistar sem einnig sýndu gyðinga sem rottur sem á að mylja.
Myndin er skjáskot úr myndbandi sem birt var á einni af opinberum Telegram rásum Fatah. Palestinian Media Watch birti myndina en hópurinn fylgist með og greinir palestínsk yfirvöld og því hatri sem þau dreifa.
![](https://i0.wp.com/gustafadolf.com/wp-content/uploads/2023/10/palestina.jpg?resize=587%2C893&ssl=1)
Aðrar nýlegar yfirlýsingar Fatah bera Ísraela saman við „apa og svín“ og kallar á „slátrun allra Ísraela.“
„Kæri systurflokkur“
Í ræðu á S-þingi 2013 kallaði Stefan Löfven flokkinn „kæra systurflokk“ jafnaðarmanna.