Tíu ára börn geta valið á milli fimm „kynjavalkosta“

Í heilsukönnun sem gerð var í Västra Götalandi fyrir tíu ára börn eru fimm valkostir varðandi kyn barnsins. Hefur það vakið mikla gagnrýni foreldra sem telja, að það valdi ruglingi hjá börnunum.

Västra Götaland hefur gert heilsukönnun hjá nemendum fjórða bekkjar, þar sem þeir voru látnir svara því, hvers kyns þeir telji sig vera undir yfirskriftinni „Líkamsskynjun og tilfinningar.“ Í frétt Världen Idag segir, að nemendur gátu valið á milli „stelpa,“ „strákur,“ „annað,“ „veit ekki“ eða „vil ekki svara.“

Verið að rugla börnin kynferðislega

Ein móðir gagnrýndi könnunia harðlega á samfélagsmiðlum. Hún skrifar:

„Það er verið að rugla börnin kynferðislega. Ég var „strákastelpa“ sem barn, hvað ef ég hefði verið spurð þessara spurninga…“

Færsla móðurinnar á Facebook vegna málsins hefur fengið mikla útbreiðslu og hundruð athugasemda og deilna. Annar skrifar í athugasemdum:

„Þetta snýst um áróður og innrætingu sem beint er til óöruggs ungs fólks í leit að sjálfsmynd sinni.“

Almennar reglur um heilsu skólabarna

Spurningalistanum er síðan fylgt eftir af skólahjúkrunarfræðingi sem fer í gegnum svörin ásamt barninu og skráir þau í sjúkraskrá barnsins. Þegar Världen Idag hafði samband við skólayfirvöld og félagsmálastofnun, þá er svarað, að yfirvöld þurfa að fylgja almennum reglum um heilsu skólabarna.

Charlotta Sundin Andersson, sem starfar hjá heilbrigðisráði barna í Vestur-Svíþjóð segir, að upplýsingarnar um spurningarnar hafi verið sendar til foreldra barnanna og þær snúist um að „taka með“ börn með „hugsanlega kynjamismun.“ Hún segir í viðtali við Världen Idag:

„Við höfum heldur ekki fengið neinar vísbendingar um að börn og ungmenni sem telja sig örugg í kynvitund sinni geti skaðast af valmöguleikanum „annað.“ Fyrir börn sem ekki eru annað hvort kynið gefur það til kynna að þau séu til og að þau geti talað um tilfinningar sínar í tengslum við hugsanlegan kynjamismun nemendaheilsunnar / heilbrigðisþjónustunnar.“

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa