Fékk hjartaáfall eftir að hafa hótað Ísrael með reiði Allah

Tyrkneski þingmaðurinn Hasan Bitmez hnígur til jarðar eftir að hafa hótað Ísrael með reiði Allah (mynd skjáskot Youtube).

Tyrkneskur þingmaður fékk hjartaáfall og féll niður í lok ræðu í beinni útsendingu, þar sem hann réðst á Ísrael og sagði að landið myndi ekki geta „flúið reiði Allah.“

Hinn 53 ára gamli Hasan Bitmez, sem tilheyrir flokki íslamista „Saadet Partisi“ sem er stjórnmáladeild Millî Görüş hreyfingarinnar, talaði fyrir sameinuðu þingi í vikunni.

Hann lauk ræðunni með því að segja að „við getum kannski falið okkur fyrir samviskunni en ekki frá sögunni“ og Ísrael „getur ekki flúið undan reiði Allah.“ Hann sagði síðan „Ég bið að heilsa ykkur öllum“ og féll síðan til jarðar við hliðina á ræðupúltinu.

Að sögn Fahrettin Koca, heilbrigðisráðherra Tyrklands, var Bitmez fluttur á sjúkrahús og ástandi hans er lýst sem „mjög alvarlegu.“

Erdogan styður Hamas

Í síðustu viku ítrekaði Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands, að Hamas væri ekki hryðjuverkasamtök og sagði að Hamas yrði að taka þátt í endurreisn Gaza eftir stríðið. Erdogan varaði Ísraela einnig við því, að þeir myndu „greiða mjög hátt verð“ ef þeir reyndu að útrýma Hamas-liðum í Tyrklandi.

Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa