Frakkar rísa upp gegn gyðingahatrinu – „Eins og á 4. áratugnum“

„Fyrir lýðveldið, gegn gyðingahatri“ stendur á breiðum borða sem margir þekktir stjórnmálamenn og fyrrverandi forsetar Frakklands héldu á í einni stærstu stuðningsgöngu í heimi við gyðinga í gær. (Mynd skjáskot SVT).

Hundruðum þúsundum fóru Frakkar út á götur í stórborgum landsins í gær til að sýna gyðingum stuðning sinn og mótmæla því gríðarlega gyðingahatri sem komið hefur fram eftir hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október sl. Í París segja flestir fjölmiðlar að á annað hundruð þúsund hafi tekið þátt í göngunni, sumir fjölmiðlar nefna töluna 180 þúsund manns. Fyrir lýðveldið, gegn gyðingahatri stóð á breiðum borða sem margir af þekktustu stjórnmálamönnum Frakklands héldu á, þar á meðal fyrrverandi forsetar landsins  François Hollande og Nicolas Sarkozy. Einnig var Elisabeth Born, forsætisráðherra með. Macron var ekki viðstaddur en sendi kveðju og sagðist vera með göngunni í huga sínum.

Gyðingahatrið sýnir sig út um allt. Í Frakklandi hafa glæpir gegn gyðingum stóraukist eftir árás Hamas á Ísrael, 1250 skráðir glæpir sem gera einn glæp á klukkutíma samkvæmt sænska sjónvarpinu SVT. Margir eldri voru með og ein daman sagði:

„Átökin í Miðausturlöndum hafa verið innflutt hingað vegna vanþekkingu og afneitun á Helförinni …. Það er eins og við séum komin aftur til baka á 4. áratuginn. Það veldur mér miklum áhyggjum.“

Hættum gyðingahatri og kynþáttafordómum
Marine Le Pen mætti.
Ungur Frakki veifar landsfánanum, þeim eina sem fékk að vera með.
Aldrei aftur – Stöndum saman sem einn
Hluti göngunnar í París
Deila
Skoðanakönnun
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa að hjálpa okkur að velja nafn á útvarpið okkar.
1

1. Hér eru nokkrar tillögur sem okkur hafa borist

Hreinsa
Þín tillaga að nafni fyrir stöðina
1

1. Hér hefur þú kost á að gera tillögu að nafni.

Hreinsa